Verið velkomin Námskeiðin Önnur lönd
Hér ertu:
» Fyrirkomulag á námskeiðahaldi

Fyrirkomulag á námskeiðahaldi

Samstarfsnefnd Alfa

Starfandi er samkirkjulegur hópur þjóðkirkju og fríkirkna um málefni Alfa á Íslandi. Þessi hópur hefur verið kallaður Samstarfsnefnd Alfa á Íslandi. Nefndin vinnur að útbreiðslu og framkvæmd námskeiðsins hér á landi og er málsvari og tengiliður við rétthafa námskeiðsins í Bretlandi; Holy Trinity Brompton kirkjuna í Lundúnum.

Formaður nefndarinnar er Magnús Björnsson, prestur í Digraneskirku í Kópavogi. Þú getur sent fyrirspurn til Magnúsar á netfangið: magnus (at) digraneskirkja.is

Alpha in English

The Alpha Course is an introduction to the Christian faith; an international course held in over 150 countries worldwide.

During the course several questions regarding the meaning of life and the Christian faith are explored.

Send an email to alfa (at) alfa.is for information on the next Alfa course in english or icelandic.

 

Alfa námskeiðin eru að öllu jöfnu haldin á vormisseri (hefjast í janúar) og á haustmisseri (hefjast í september).  Ef þín kirkja er ekki í listanum, fremst á þessari vefsíðu, þá hvetjum við þig til að hafa samband við skrifstofu kirkjunnar og spyrjast fyrir um hvort fyrirhugað sé að halda Alfa.

Á Alfa 1 er kastað fram áleitnum spurningum, eins og "Hver var Jesú?", "Hvernig starfar Heilagur andi?" og þátttakendur hvattir til að mynda sínar eigin skoðanir og taka afstöðu til efnisins.  Biblían er skoðuð sem söguleg heimild og sannleiksgildi hennar rætt frá öllum hliðum.